Sensitive Weight Management Adult er vandlega samsett uppskrift sem er þróuð fyrir hunda sem þurfa bæði þyngdarstjórnun og stuðning við meltingu. Þetta Super Premium, glútenlausa fóður sameinar minnkað fituinnihald og ákjósanlegt magn trefja til að styðja við þyngdarstjórnun á sama tíma og það er milt fyrir viðkvæman maga.
Með einum dýrapróteingjafa sem auðveldar meltingu, inúlíni sem styður heilbrigða þarmaflóru og viðbættu L-karnitíni sem stuðlar að eðlilegum fituefnaskiptum, hjálpar það til við að stjórna þyngd án þess að draga úr vellíðan hundsins.
Uppskriftin er einnig auðguð með laxolíu, hörfræjum og bíótíni, sem styðja við heilbrigða húð og glansandi feld — og gerir þetta fóður að heildarlausn fyrir of þunga eða viðkvæma hunda.
MEÐ L-KARNITÍNI
- Vegna hlutverks síns í fituefnaskiptum hjálpar L-karnitín til við að styðja við eðlilega þyngdarstjórnun hjá of þungum hundum og hjálpar jafnframt til við að viðhalda vöðvamassa.
INNIHELDUR FOS
- Auðgað með inúlíni, uppsprettu frúktó-olígósakkaríða (FOS), sem eru forlífverur (prebiotics) sem stuðla að heilbrigðri þarmaflóru, bæta meltingu og styðja almenna þarmaheilsu, sem getur hjálpað hundum með fæðuviðkvæmni.
GLÚTENLAUS UPPSKRIFT
- Unnið úr auðmeltanlegum kolvetnum sem gera uppskriftina milda fyrir meltingarkerfið og styðja við vellíðan hunda með viðkvæma meltingu.
LÁGT FITUINNIHALD
- Styður við þyngdarstjórnun hjá of þungum hundum eða viðheldur heilbrigðri þyngd hjá hundum sem eiga auðvelt með að þyngjast, vegna minnkaðs fituinnihalds* (*36% minni fita en í Hypoallergenic Flexcare™ Adult).
ÁKJÓSANLEGT TREFJAMAGN
- Ákjósanlegt magn trefja úr jurtum hjálpar til við að stuðla að reglulegri hægðalosun og eykur seddu tilfinningu, sem dregur úr hungri milli máltíða.
HÚÐ OG FELDUR
- Auðgað með laxolíu og hörfræjum sem veita nauðsynlegar fitusýrur og stuðla að mjúkum og glansandi feldi ásamt heilbrigðri húð. Einnig inniheldur það bíótín, mikilvægt næringarefni fyrir heilbrigða húð og feld.
EINN DÝRAPRÓTEINGJAFI
- Uppskrift með einum próteingjafa sem er þróuð til að draga úr líkum á meltingarvandamálum og styðja við jafnvægi í meltingu hjá of þungum hundum með fæðuviðkvæmni.
STUÐNINGUR VIÐ ÓNÆMISKERFIÐ
- Uppskriftin er auðguð með næringarefnum sem styðja við langtímaheilsu: náttúruleg andoxunarefni (vítamín C, vítamín E og beta-karótín) veita öfluga andoxunarvörn, ónæmisstyrkjandi steinefni (sink, selen) og nauðsynlegar fitusýrur (omega-3 og omega-6) styðja við sterkt ónæmiskerfi og almenna vellíðan.
Fóðurráðleggingar:
- Gefið Husse fóðrið eins og það er eða hellið smá volgu vatni yfir það.
- Skál með köldu vatni ætti allaf að vera tiltæk fyrir hundinn þinn.
- Fyrir ráðlagðan dagskammt, sjá nánar fóðurtöflu. Fóðurtaflan er eingöngu til viðmiðunar, daglegur skammtur þarf að vera stilltur eftir þörfum hvers hunds.
- Skiptu dagskammtinum í a.m.k. tvær máltíðar á dag.
- Ef þú telur að hundurinn þinn sé of þungur ættir þú að ráðfæra þig við dýralækni áður en hafin er þyngdarstjórnun eða megrunaráætlun.
Fóðurtafla:
| Þyngd |
Ráðlagður dagskammtur |
| Til að léttast |
Viðahalda þyngd |
| 1 - 5 kg |
22 - 15 g x kg |
25 - 19 g x kg |
| 5 - 10 kg |
15 - 12 g x kg |
19 - 16 g x kg |
| 10 - 20 kg |
12 - 10 g x kg |
16 - 13 g x kg |
| 20 - 40 kg |
10 - 9 g x kg |
13 - 11 g x kg |
| 40 - 60 kg |
9 - 8 g x kg |
11 - 10 g x kg |
| > 60 kg |
8 g x kg |
10 g x kg |
1 dl af Selected Sensitive Weight Management Adult = 38 g
SAMSETNING:
Þurrkaður kjúklingur, brún hrísgrjón, hrísgrjón, dýrafita, trefjar úr jurtum (2%), vatnsrofið dýraprótein, hörfræ (1%), laxolía (1%), bjórger, steinefni, inúlín (0,3% – uppspretta frúktó-olígósakkaríða), þurrkuð egg, sjávarþörungar.
HLUTFALL NÆRINGAREFNA:
prótein 26.0% (*81% dýraprótein af heildarpróteininnihaldi), fita 9.5%, hráaska 6.0%, trefjar 3.0%, kalsíum 1.3%, fosfór 0.9%, omega-3 fitusýrur 0.3%, omega-6 fitusýrur 1.4%. Umbrotsorka: 3755 kcal/kg.
AUKAEFNI:
Næringarefni/kg: A vítamín 21000 IU, D3 vítamín 1900 IU, E vítamín 550 mg, C vítamín 425 mg, 3b103 (Járn) 50 mg, 3b202 (Joð) 1.5 mg, 3b405 (Kopar) 5 mg, 3b502 (Mangan) 35 mg, 3b605 (Sink) 65 mg, 3b801 (Selen) 0.1 mg, beta-karótín 1 mg, bíótín 1 mg, L-karnitín 300 mg;
Andoxunarefni : Tókóferólþykkni úr jurtaolíum (1b306(i)) og rósmarínþykkni;
Tæknileg aukaefni/kg: Sepíólít 10 g, lesitín 1000 mg.