Gefðu hundinum þínum fyrsta flokks næringu með Husse Hypoallergenic Skin & Coat Adult – Super Premium ofnæmisvænni uppskrift sem er sérstaklega þróuð fyrir viðkvæma meltingu og heilbrigði húðar og felds. Fóðrið er ríkt af nauðsynlegum omega fitusýrum og auðgað með bíótíni, sinki og kopar sem hjálpa til við að viðhalda raka í húðinni og fallegum, glansandi feldi. Forlífrænar trefjar og andoxunarefni styðja jafnframt við heilbrigða meltingarflóru og sterkt ónæmiskerfi, sem gerir þetta að fullkominni úrvalsuppskrift sem sameinar milda meltingu og stuðning við húð og feld.
EINN PRÓTEINGJAFI
- Einpróteina uppskrift þróuð til að hjálpa við að draga úr hættu á meltingaróþægindum og styðja við jafnvægi í meltingu hjá hundum með viðkvæmni.
OMEGA 3 & 6
- Uppskrift rík af omega fitusýrum sem eru nauðsynlegar fyrir mjúkan og glansandi feld og heilbrigða húð – fullkomið fyrir hunda með viðkvæma húð eða feld.
OFNÆMISVÆNT
- Ofnæmisvæn uppskrift án soja, hveitis, nautakjöts, kjúklinga eða mjólkurafurða, tilvalið fyrir hunda með óþol eða viðkvæmni.
HÚÐ & FELDUR
- Auðgað með laxolíuog hörfræjum sem náttúrulegum uppsprettum Omega-3 og Omega-6 fitusýra, ásamt næringarefnum eins og sinki, kopar og bíótíni sem hjálpa til við að viðhalda heilbrigðri og rakaríkri húð ásamt mjúkum og glansandi feld.
INNIHELDUR FOS
- Auðgað með inúlíni, uppsprettu frúktó-olígósakkaríða (FOS), sem eru forlífrænar trefjar sem stuðla að heilbrigðri meltingarflóru, bæta meltingu og styðja við almenna meltingarheilsu, sérstaklega mikilvægt fyrir hunda með fóðurnæmi.
GLÚTENLAUS UPPSKRIFT
- Samsett með auðmeltanlegum kolvetnagjöfum sem veita jafna orku yfir daginn án þess að ofhlaða viðkvæmt meltingarkerfi.
ÓNÆMISKERFI
- Vel jafnvægisstillt uppskrift sem styður við ónæmiskerfið með andoxunarefnum (C- og E-vítamíni, beta-karótíni), steinefnum sem styðja við ónæmi (sink og kopar) og nauðsynlegum fitusýrum (Omega 3 & 6).
MEÐ L-KARNITÍNI
- Styður við fituefnaskipti og hjálpar til við að viðhalda sterkum vöðvum og heilbrigðum efnaskiptum.
-
Fóðurráðleggingar:
- Berið Husse matinn fram eins og hann er eða hellið smá volgu vatni yfir hann.
- Skál með fersku vatni ætti alltaf að vera til staðar fyrir hundinn þinn.
- Sjá fóðrunartöflu um daglegan skammt. Fóðrunartaflan er aðeins leiðarvísir, daglegt magn verður að aðlaga í samræmi við kröfur hundsins.
- Skiptu ráðlögðum dagskammti í að minnsta kosti tvær máltíðir á dag.
Fóðurtafla:
| Þyngd |
Ráðlagður dagskammtur |
| 5 - 10 kg |
15 - 13 g x kg |
| 10 - 20 kg |
13 - 11 g x kg |
| 20 - 40 kg |
11 - 9 g x kg |
| 40 - 60 kg |
9 - 8 g x kg |
| > 60 kg |
8 g x kg |
1 dl af Skin & Coat Adult = 39 g
SAMSETNING:
þurrkaður lax, brún hrísgrjón, hrísgrjón, dýrafita, hrísgrjónamjöl, hörfræ (2%), jurtatrefjar, vatnsrofið dýraprótein, laxolía (1%), bjórger, inúlín (0,3%, uppspretta frúktó-olígósakkaríða), steinefni, sjávarþörungar.
HLUTFALL NÆRINGAREFNA:
prótein 24.0% (*77% dýraprótein af heildarpróteininnihaldi), fita 14.0%, hráaska 5.2%, trefjar 3.0%, kalk 1.1%, fosfór 0.8%, omega-3 fitusýrur 1.2%, omega-6 fitysýrur 1.4%. Umbortsorka : 4012 kcal/kg.
AUKAEFNI:
Næringarefni/kg: A vítamín 18000 IU, D3 vítamín 1700 IU, E vítamín 500 mg, C vítamín 425 mg, 3b103 (Járn) 50 mg, 3b202 (Joð) 1.5 mg, 3b405 (Kopar) 5 mg, 3b502 (Mangan) 35 mg, 3b605 (Sink) 65 mg, 3b801 (Selen) 0.1 mg, beta-karótín 1 mg, bíótín 1 mg, L-karnitín 300 mg;
Andoxunarefni: Tókóferólþykkni úr jurtaolíum (1b306(i)) og rósmarínþykkni;
Tæknileg aukaefni/kg:Sepíólít 10 g.