Gleðipakki Husse
Allt sem þú þarf að vita um Gleðipakka Husse.
Hvað er Gleðipakki Husse? Það er ný áskriftarleið þar sem þú færð sendan gómsætan Gleðipakka handa gæludýrinu þínu einu sinni í mánuði.
Husse nammi, blautmatur og bein eru mjög vinsæl og margir kaupa eina og eina vöru á sama tíma og þurrfóðrið er keypt en með þessu fyrirkomulagi er einfaldlega þægilegt að fá flottan mánaðarskammt af nammi um hver mánaðarmót. Gleðipakki Husse er líka sniðugur fyrir þá sem kaupa annað þurrfóður en vilja gjarnan nota Husse smávörurnar.
Í Gleðipakka fyrir hunda er hægt að fá nammi, bein og blautmat.
Í Gleðipakka fyrir ketti er hægt að fá nammi og blautmat.
Ef þú átt bæði hund og kött þá er ekkert mál að fá blandaðan pakka.
Þú lætur bara vita ef það er eitthvað sérstakt sem þú vilt ekki fá.
Ef þú vilt velja sjálf(ur) þá færðu alltaf sömu vörurnar sendar mánaðarlega en að sjálfsögðu má breyta til ef þig langar að prófa eitthvað nýtt eða skipta út.
Ef þú vilt fá eitthvað óvænt þá set ég saman eitthvað skemmtilegt í Gleðipakkann og þú færð þá ekki alltaf það sama.
Lágmarkspöntun er 3.500 kr. en þú mátt ráða hámarkinu. Ég set einfaldlega vörur upp að því hámarki sem þú velur. Þannig getur þú valið þá áskriftarupphæð sem hentar þér.
Það er ókeypis heimsending*/póstboxsending fyrir Gleðipakka yfir 5.000 kr. en 990 kr. sendingargjald bætist við pantanir undir þeim mörkum.
*Það er frí heimsending innan Akureyrar í póstnúmerum 600 og 603.
Allir Gleðipakkar utan Akureyrar eru sendir í Póstbox.
Áskrift er bindandi í 3 mánuði en uppsögn þarf að berast í tölvupósti á [email protected]
Hér fyrir neðan velur þú það sem hentar þér, hvort sem þú ert með hund(a), kött (ketti) eða bæði.
Þegar búið er að fylla formið út mun ég hafa samband og við finnum besta Gleðipakkann handa þínu gæludýri 
